Þriðja tap Dalvíkur/Reynis í röð
Dalvík/Reynir mætti Víkingi Ólafsvík í 2. deild karl í dag á Dalvíkurvelli í 14. umferð Íslandsmótsins. Deildin er mjög jöfn í efri hlutanum og gat D/R með sigri komist í toppbaráttuna en fáum stigum munar á efstu liðinum og niður í miðja deild. Víkingur gat með sigri komist upp fyrir D/R í deildinni.
Víkingar unnu fyrri leik liðanna í deildinni í vor og einnig í Lengjubikarnum. D/R vann hinsvegar báða leikina á Íslandsmótinu í fyrra gegn Víkingi. Búist var við jöfnum leik.
Staðan var 0-o í hálfleik en fjórir leikmenn voru komnir í gult spjald.
Víkingar misstu leikmann af velli á 48. mínútu og léku einum færri það sem eftir lifði leiks.
Á 63. mínútu skoruðu gestirnir fyrsta mark leiksins og voru komnir í 0-1 þrátt fyrir að vera manni færri.
Þjálfari D/R gerði fljótlega tvær skiptingar og kom Hektor Bergmann og Almar Örn inná.
Ekki voru fleiri mörk skoruð og endaði leikurinn því 0-1 fyrir Víking.
Dalvík/Reynir eru núna í 7. deildarinnar með 20 stig, en nokkrir sigrar í næstu leikjum geta gjörbreytt stöðunni.
