dalvíkurbyggð

Þungur rekstur á Dalbæ og sótt um yfirdrátt

Stjórn Dalbæjar fundaði í ágústmánuði og fór yfir þunga stöðu í rekstri dvalarheimilisins. Fram kom á fundinum að mögulegar ástæður stöðunnar væru að launakostnaður starfsmanna hefur aukist og vegna veikinda starfsmanna. Framkvæmdakostnaður hefur verið vegna lagfæringa á netkerfi og annara framlaga vegna framkvæmda í húsnæðinu undanfarin ár.

Stjórnin samþykkti að fela hjúkrunarforstjóra Dalbæjar að sækja um 10 milljón króna yfirdrátt hjá Landsbankanum.