dalvíkurbyggð

Tveir sigrar hjá Dalvík/Reyni í 2. deild karla

Dalvík/Reynir hefur leikið tvo leiki í júní mánuði í 2. deild karla. Liðið mætti Þrótti Vogum á Dalvíkurvelli 6. júní. Leikurinn var jafn og stefndi allt í jafntefli þegar Máni Dalsteinn Ingimarsson skoraði sigurmark leiksins fyrir D/R á 88. mínútu. Hans fyrsta mark í deildinni í sumar. Lokatölur 1-0 fyrir D/R.

Miðvikudaginn 10. júní var útileikur gegn Magna á Grenivík. Búist var við erfiðum leik gegn þessu nágrannaliði. Það var Áki Sölvason sem braut ísinn á 34. mínútu og leiddi D/R 0-1 í hálfleik.

Elvar Máni Guðmundsson bætti við marki um miðjan síðari hálfleik fyrir D/R og kom þeim í þægilega stöðu, 0-2. Heimamenn misstu mann útaf í uppbótartíma, en lokatölur urðu 0-2 og góður sigur hjá D/R.

Tveir góðir sigrar hjá D/R í júní.

Liðið leikur við Hauka í dag, 15. júní á Dalvíkurvelli kl. 16:00.