dalvíkurbyggð

Um 400 keppendur á Strandarmótinu á Dalvík

Strandarmótið í knattspyrnu fer fram á morgun, laugardaginn 18. júlí á Dalvíkurvelli. Keppt verður í 7.-8. flokki. Meðal liða eru Dalvík, KF, Tindastóll, KA, Þór, KFA, Magni og Völsungur. Um 400 keppendur taka þátt í mótinu.

Að móti loknu fá keppendur verðlaunapening, þátttökugjöf, grillaða pylsu og drykk, íspinna og frítt í sund.

Leikreglur:

8. flokkur: Spilaður er þriggja manna bolti,Engin dómari Þjálfarar sjá um að láta leikinn fljóta og aðstoða

Leikir 8. flokks eru 10 mínútur.

7.flokkur: Spilaður er fimm manna bolti með dómara.

Leikir 7. flokks eru 12 mínútur.