Umsóknir í afreks- og styrktarsjóð Dalvíkurbyggðar
Íþrótta- og æskulýðsráð Dalvíkurbyggðar hefur farið yfir þær umsóknir sem bárust í afreks- og styrktarsjóð Dalvíkurbyggðar í ár. Ráðið hefur samþykkt að veita fjölmörgum einstaklingum og félögum styrki. Ein umsókn barst of seint og var hafnað.
Samþykktir styrkir af Íþrótta- og æskulýðsráði Dalvíkurbyggðar:
a) Lovísa Rut Aðalsteinsdóttir vegna ástundunar og árangurs í blaki
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að styrkja Lovísu Rut um kr. 50.000.- og vísar því á lið 06-80.
b) Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir vegna ástundunar og árangurs í knattspyrnu
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að styrkja Snædísi Óskt um kr. 50.000.- og vísar því á lið 06-80.
c) Sveinn Margeir Hauksson vegna ástundunar og árangurs í knattspyrnu
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að styrkja Svein Margeir um kr. 50.000.- og vísar því á lið 06-80.
d) Amalía Nanna Júlíusdóttir vegna ástundunar og árangurs í sundi
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að styrkja Amalíu Nönnu um kr. 50.000.- og vísar því á lið 06-80.
e) Torfi Jóhann Sveinsson vegna ástundunar og árangurs á skíðum
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að styrkja Torfa Jóhann um kr. 50.000.- og vísar því á lið 06-80.
f) Draupnir Jarl Kristjánsson vegna ástundunar og árangurs í blaki
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að styrkja Draupni Jarl um kr. 50.000.- og vísar því á lið 06-80.
g) Barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar vegna helgarnámskeiðs í knattspyrnu
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að styrkja Barna- og unglingaráð um kr. 300.000.- og vísar því á lið 06-80.
h) Skíðafélag Dalvíkur vegna uppbyggingar skíðagönguíþróttarinnar í Dalvíkurbyggð
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að styrkja Skíðafélagið um kr. 300.000- og vísar því á lið 06-80.
g) Knattspyrnudeild UMFS vegna afreksæfinga og tækniskóla
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að styrkja Knattspyrnudeild UMFS um kr. 300.000.- og vísar því á lið 06-80.
h) Sundfélagið Rán vegna sundnámskeiðs fyrir fullorðna
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að styrkja Sundfélagið Rán um kr. 100.000.- og vísar því á lið 06-80.
i) Golfklúbburinn Hamar vegna frírra æfinga fyrir byrjendur og búnaðarkaup vegna þeirra
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að styrkja Golfklúbbinn Hamar um kr. 200.000.- og vísar því á lið 06-80.