Uppskeruhátíð Hestamannafélagsins Hrings
Uppskeruhátíð Hestamannafélagsins Hrings verður haldin í veitingahúsinu Norður laugardaginn 27. október. Húsið opnar kl. 19:30 og borðhald hefst kl. 20:00
Þar mun Hringur veita sínar árlegu viðurkenningar einnig mun Hrossaræktardeildin veita sínar viðurkenningar, að lokum verður matur og skemmtun.
Boðið verður uppá 3ja rétta matseðil. Opinn bar er á staðnum þar sem hægt verður að kaupa sér drykkjarföng. Verði er stillt í hóf og niðurgreiðir Hringur matinn sem þakklætisvott fyrir vel unnin störf á árinu og er miðaverð krónur 3.000 kr. á félagsmenn og 5.000 kr. fyrir aðra gesti.
Við pöntunum taka Brynhildur Jónsdóttir í síma 616 8022 og Bergþóra Sigtryggsdóttir í síma 895 7906 eða á netfangið brekka80@simnet.is.