Veitingastaðurinn á Hvanndalir Lodge opnar í Ólafsfirði
Hvanndalir Lodge í Ólafsfirði er nú í þann mund að opna. Á morgun, föstudaginn 25. júlí opnar veitingastaðurinn og barinn. Gisting og heilsulind opna einnig mjög bráðlega. Húsnæðið og breytingar koma svakalega vel út og á eftir að verða stórt aðdráttar afl í ferðaþjónustunni á Norðurlandi, sér í lagi í Fjallabyggð.
Hótelið sjálft hefur 7 herbergi, meðal annars fjölskylduherbergi fyrir fjóra og tvær svítur.
Við fengum að skyggnast inn og skoða matseðilinn. Boðið er upp á forrétti, aðalrétti og eftirrétti. Hægt er að fá bleikju, lambaskanka, nautalund og blómkál í aðalrétt. Forréttir og eftirréttir líta líka vel út. Borðapantanir eru í síma 788-8514.
Eins og heimamenn þekkja, þá hefur húsið við Aðalgötu 14 í Ólafsfirði sér langa sögu, en Sparisjóður Ólafsfjarðar og síðar Arion banki voru í húsinu og Náttúrugripasafn Ólafsfjarðar var á loftinu. Húsið er byggt árið 1982 og er um 792 fm á stærð.
Fylgist vel með Hvanndölum, en þarna verður hægt að eiga gæðastundir í gistingu, mat & drykk og í heilsulindinni.
Í heilsulindinni er heitur pottur, infrarauð sána, kaldur pottur og nudd.
Veitingastaðurinn og heilsulindinn er fyrir alla, ekki bara þá sem eru í gistingu.


