dalvíkurbyggð

Vertíðarlok hjá Skíðasvæðinu á Dalvík

Umsjónarmenn Skíðasvæðisins á Dalvík tilkynntu þann 6. apríl síðastliðinn um vertíðarlok á svæðinu,nema fyrir æfingar fram að Andrésar Andarleikunum og meðan aðstæður leyfa.Lokað er núna fyrir almenning. Áætlað er að svæðið opni aftur 1. desember.

Ákveðið var í upphafi tímabilsins að opnun yrði stytt í annan endan þar sem reksturinn á síðasta ári var þungur, en félagið var rekið með 10 milljón króna halla á síðasta ári.  Dalvíkurbyggð greiddi félaginu sömu upphæð til að rétta reksturinn af sem var einnig fyrirframgreiðsla fyrir árið 2026. Árið hefur því farið í að rétta reksturinn af en nú eru seglin dregin saman til að lágmarka útflæðið.