Vilja aukið fé til að eyða minki í Dalvíkurbyggð
Landbúnaðaráð Dalvíkurbyggðar hefur lagt til að sótt verði um aukið fjármagn til Umhverfisstofnunar vegna eyðingu minks í Dalvíkurbyggð.
Minkurinn er nú þegar farinn að gera allt of mikið vart við sig eftir að átaki nokkura sveitarfélaga lauk sem miðaðist við að útrýma villimink. Þessu átaki lauk of snemma með þeim afleiðingum að minkurinn er farinn að vaða upp á nýjan leik með tilheyrandi eyðileggingu á lífríki í Dalvíkurbyggð.
Landbúnaðaráð Dalvíkurbyggðar telur skipulagða útrýmingu villiminks vera eitt af stærri umhverfismálum margra sveitarfélaga og þess vegna þurfi ríkisvaldið að bregðast við með stórauknu fjármagni í málaflokkinn.