dalvíkurbyggð

Vilja gera minnisvarða um þættina True Detective sem teknir voru upp á Dalvík

Leikfélag Dalvíkur vill láta reisa minnisvarða um tökur þáttanna True Detective í Dalvíkurbyggð sem yrði þá aðdráttarafl fyrir ferðamenn að stoppa við. Leikfélag Dalvíkurbyggðar hefur boðið fram krafta sína við að reisa minnisvarða um tökurnar með því markmiði að hann yrði tilbúinn í vor.

Hugmyndir eru um að setja upp skilti á túni við spennirafstöðina á móti Ungó ásamt munum úr leikmyndinni. Leikfélagið óskar eftir  2 milljónum króna frá Dalvíkurbyggð samkvæmt lauslegri kostnaðaráætlun m.a. til að fá aðila til að hanna minnisvarðann og framkvæmdin yrði á höndum Leikfélagsins ásamt starfsmönnum Dalvíkurbyggðar.