110 í einangrun í Dalvíkurbyggð
Alls eru núna 1633 í einangrun á Norðurlandi, þar af 1536 á Norðurlandi eystra og 93 á Norðurlandi vestra.
Á vef Dalvíkurbyggðar kemur fram að 110 séu í einangrun. Þar á bæ hefur sveitarfélagið upplýst íbúa mjög vel um stöðuna undanfarna mánuði.
Á Norðurlandi vestra eru flest smitin í Skagafirði en þar eru 42 í einangrun.

