15 án atvinnu í Dalvíkurbyggð
Í Dalvíkurbyggð eru alls 15 án atvinnu í október 2018 og mælist atvinnuleysi aðeins 1,4%. Þar af eru 9 karlar og 6 konur. Atvinnuleysi hefur mest mælst 2,7% á þessu ári í Dalvíkurbyggð sem var í febrúarmánuði þegar 28 voru án atvinnu, en hefur farið lækkandi síðan.
Alls voru 34 án atvinnu í október 2018 í Fjallabyggð. Þar af voru 17 karlar og 17 konur. Atvinnuleysi mælist nú 3,1% í Fjallabyggð og er aðeins eitt annað sveitarfélag á Norðurlandi sem mælist hærra, en það er Skagaströnd en þar er nú 5% atvinnuleysi.
Á Akureyri eru 233 án atvinnu og mælist atvinnuleysi 2,2%. Í Skagafirði eru 26 án atvinnu og mælist atvinnuleysi aðeins 1,2%.