25 ára afmæli Karlakórs Fjallabyggðar
25 ára afmælistónleikar Karlakórs Fjallabyggðar, verður fagnað með tónlistarveislu sunnudaginn 27. apríl kl. 16:00 í Siglufjarðarkirkju.
Fagnað verður 25 ára afmæli Karlakórs Fjallabyggðar með veglegum tónleikum þar sem flutt verða valin lög úr efnisskrá kórsins síðustu 25 ár. Miðaverð er 5000 kr. Edda Björk Jónsdóttir er stjórnandi kórsins.
Fram koma:
Karlakór Fjallabyggðar ásamt hljómsveit
Gestasöngvari: Tinna Hjaltadóttir
Hljómsveit:
Píanó – Elías Þorvaldsson
Gítar – Guðmann Sveinsson
Bassi – Mikael Sigurðsson
Trommur – Rodrigo Lopes
Stjórnandi: Edda Björk Jónsdóttir
Miðaverð: 5.000 kr.
Athugið: Enginn posi á staðnum
