dalvíkurbyggðFjallabyggð

29. Jónsmótið haldið um helgina á Dalvík og Siglufirði

 Skíðafélag Dalvíkur hefur frá árinu 1996 staðið fyrir skíðamóti með sundívafi sem haldið er til minningar um Jón Bjarnason, sem var einn af stofnendum félagsins. Mótið fer fram fyrstu dagana í mars ár hvert. Mótið er ætlað 9-13 ára börnum af öllu landinu. Keppnin er að hluta til með óhefðbundnu sniði, keppt er í stórsvigi (ein umferð), 25 metra bringusundi í 9-10 ára flokki, 50 m bringusundi í 11-13 ára flokki og svigi (tvær umferðir).
 Í ár er mótið haldið í 29.skipti. Að þessu sinni fór sundkeppnin fram á Dalvík en sökum snjóleysis á Dalvík var alpagreinakeppnin færð yfir á Skíðasvæðið í Skarðsdal á Siglufirði.
Góð samvinna er á milli S.S.S. og Skíðafélags Dalvíkur og er þetta í fyrsta skipti sem Dalvíkingar hafa þurft að leita til nágranna sinna á Siglufirði til að halda móti eins og þetta. Í ár mættu um það bil 200 keppendur til leiks allstaðar að af landinu.
 Starfsmenn Skíðasvæðisins á Siglufirði hafa unnið hörðum höndum að því núna í tæpa viku að færa til snjó og halda keppnisbrekkunni eins góðri og hægt er því snjóleysi er einnig í Skarðsdal.
Skíðafélag Dalvíkur vill koma á framfæri kærum þökkum til Skíðafélags Siglufjarðar og starfsmönnum Skíðasvæðisins í Skarðsdal fyrir alla aðstoð og samvinnu.
Texti: aðsend tilkynning.
Myndir: 

Jón Hrólfur
Alexandra Ísold
Margrét Hlín