40 brautskráðust frá MTR
Fjörutíu nemendur brautskráðust frá Menntaskólanum á Tröllaskaga í vikunni. Sextán útskrifuðust af félags- og hugvísindabraut, þrír af íþrótta- og útivistarbraut, þrír af kjörnámsbraut, fimm af listabraut, myndlistarsviði, tveir af listabraut, listljósmyndunarsviði, tveir af náttúruvísindabraut, sjö af stúdentsbraut að loknu starfsnámi og tveir af starfsbraut. Tuttugu og níu brautskráðra eru fjarnemar og voru ellefu þeirra viðstaddir útskriftarathöfnina. Skólinn hefur starfað í ellefu ár og hafa samtals 388 brautskráðst frá upphafi, flestir af félags- og hugvísindabraut, nær fjörutíu prósent hópsins. – Frá þessu var fyrst greint á vef mtr.is.
Í upphafi skólaársins voru 442 nemendur skráðir í skólann. Í upphafi vorannar voru nemendur 493, þar af 422 í fjarnámi. Meira en helmingur fjarnema býr á höfuðborgarsvæðinu. Starfsmenn skólans á vorönn voru 28.
Faraldurinn og samkomubann höfðu að sjálfsögðu mikil áhrif á skólastarfið í vetur. Framan af hausti gátu nemendur mætt í skólann með ákveðnum takmörkunum en seinni hluta haustannar var eingöngu fjarkennt. Á vorönn var unnt að halda uppi staðkennslu innan þess ramma sem sóttvarnareglur leyfðu. Nemendur og starfsfólk hafa staðið sig gríðarlega vel og samkvæmt könnunum hefur flestum liðið nokkuð vel miðað við aðstæður. Það hefur enn og aftur sannað sig að í MTR er hugsað í lausnum. Í þriðja sinn er til dæmis sýning á verkum nemenda í annarlok rafræn og öllum opin. Þá héldu nemendur í skapandi tónlist glæsilega fjáröflunartónleika fyrir jól sem sendir voru út beint á netinu. Hluti sama hóps gerði sér lítið fyrir og vann söngkeppni framhaldsskólanna í lok september.
Starfsmenn skólans hafa verið duglegir að taka þátt í erlendum verkefnum. Eins og gefur að skilja hafa samskiptin í slíkum verkefnum takmarkast við netsamskipti í vetur. En vonandi verður brátt breyting á og þá höldum við ótrauð áfram, því við teljum slík verkefni ákaflega gefandi og lærdómsrík og höfum verið svo heppin að fá marga styrki sem sótt hefur verið um. Skólinn hefur nú fengið staðfestingu sem Erasmus-skóli og auðveldar það allt starf á þeim vettvangi. Í skólanum er unnið ötullega að umhverfismálum og hefur skólinn tekið þátt í verkefninu „Græn skref í ríkisrekstri“ og hefur nú, annar af tveimur skólum, lokið við að uppfylla öll skrefin fimm.
Eins og áður er umtalsverð þróun í gangi og hefur skólinn fyrir löngu skapað sér sérstöðu á sviði fjarkennslu og í notkun upplýsingatækni í skólastarfi og henta kennsluaðferðir skólans þar mjög vel. Kennslufyrirkomulag skólans kom sér margoft einstaklega vel síðustu tvo vetur og hefur svo sannarlega sannað sig. Starfsemi skólans hefur hlotið margs konar viðurkenningu og má nefna að á haustdögum var skólinn tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna og var það okkur mikill heiður.
Lísebet Hauksdóttir og Þórarinn Hannesson, kennarar við skólann glöddu viðstadda með tónlistarflutningi við útskriftarathöfnina. Þau fluttu lögin Kvöldsigling eftir Gísla Helgason og Jón Sigurðsson og Þannig týnist tíminn eftir Bjartmar Guðlaugsson.
