47 umsóknir bárust í Startup Landið
Alls bárust 47 umsóknir í Startup Landið, viðskiptahraðal fyrir frumkvöðla og nýsköpunarverkefni á landsbyggðinni, en umsóknarfrestur rann út á miðnætti 1. september. Umsóknir bárust víðs vegar að af landinu og endurspegla þann kraft og fjölbreytileika sem einkennir nýsköpun og frumkvöðlastarf á landsbyggðinni.
Startup Landið hefst 24. september og stendur yfir í sjö vikur. Á þeim tíma fá þátttakendur aðgang að reynslumiklum leiðbeinendum, markvissri fræðslu og öflugu tengslaneti sem styður við þróun verkefna og hjálpar teymunum að taka næstu skref í sínum rekstri og hugmyndavinnu.
Hraðlinum lýkur með lokaviðburði á Selfossi 5. nóvember þar sem þátttakendur kynna verkefni sín og þann árangur sem náðst hefur á meðan á þátttökunni stendur.
Valnefnd Startup Landsins fer nú yfir umsóknirnar og velur þau teymi sem bjóðast sæti í hraðlinum. Gert er ráð fyrir að tilkynnt verði um valin verkefni í næstu viku.
Fjöldi umsóknanna og landfræðileg dreifing þeirra sýnir að áhugi á nýsköpun og frumkvöðlastarfi er mikill um allt land. Umsóknir bárust frá fjölbreyttum svæðum og endurspegla þær ólíkar hugmyndir, áskoranir og tækifæri sem verið er að vinna með í íslenskum byggðum.
Startup Landið er samstarfsverkefni landshlutasamtaka um allt land og hefur það markmið að styðja við vöxt nýrra verkefna og efla nýsköpun óháð staðsetningu.
