Afmæliskaffi Dalvíkurbyggðar á sunnudaginn
Sunnudaginn 16. desember kl. 14:00 munu jólasveinarnir mæta á sinn stað á svalirnar á Kaupfélaginu á Dalvík, syngja nokkur lög og afhenda krökkunum eitthvað gott.
Kl. 14:30 býður Dalvíkurbyggð íbúum að koma í Berg menningarhús og þiggja kaffi og afmælisköku í tilefni 20. ára afmælis Dalvíkurbyggðar. Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar flytur stutt ávarp kl. 14.30 og stendur boðið til kl. 16:30.