dalvíkurbyggð

Áfram rýming á húsum á Siglufirði

Áfram er spáð snjókomu og vindi næstu daga á Norðurlandi.  Í dag féll snjóflóð  í Héðinsfirði, en ekki bárust tilkynningar um fleiri flóð.  Af þessum sökum verður áfram í gildi óvissustig vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi og hættustig á Siglufirði með rýmingum. Óvissustig er á Siglufjarðarvegi vegna snjóflóðahættu.  Íbúar sem rýmdu hús í gær fá að fara heim undir kvöld til þess að sækja hluti og huga að eigum sínum undir eftirliti lögreglu en fá ekki að dvelja þar.

Í dag tókst að opna Siglufjarðarveg og veginn um Ólafsfjarðarmúla, en honum verður aftur lokað kl 20:00 í kvöld vegna hættu á snjóflóðum. Búast má við truflunum á samgöngum á meðan þetta ástand varir og er fólk hvatt til þess að fylgjast vel með tilkynningum Vegagerðarinnar.

Varðskip Landhelgisgæslunnar, Týr, liggur inni á Eyjafirði úti fyrir Dalvík og verður til taks á meðan hættuástand varir.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Lögreglan á Norðurlandi eystra, Veðurstofa Íslands og sveitarfélagið Fjallabyggð fylgjast áfram náið með þróun og stöðu mála.