dalvíkurbyggð

Ágæti íbúi og kjósandi – Helgi Einarsson hjá K-listanum í Dalvíkurbyggð skrifar

Ágæti íbúi og kjósandi.
K-listinn, óháð framboð, hefur verið í meirihluta á þessu kjörtímabili og á þeim tíma hefur margt áunnist. Verkefnin eru fjölbreytt og eðlilegt að ekki náist að klára allt á fjórum árum. Þess vegna sækjum við nú eftir áframhaldandi trausti og sterku umboði til að halda áfram að bæta og þróa sveitarfélagið okkar.
Styrkur K-listans felst bæði í reynslu og endurnýjun. Listinn er skipaður reyndu fólki sem er tilbúið að halda áfram fjölbreyttum verkefnum. Með okkur er öflugur hópur fólks sem vill leggja sitt af mörkum fyrir samfélagið. Við þekkjum stjórnkerfið, vitum hvernig best er að koma málum áfram og getum hafið vinnuna strax frá fyrsta degi. Sú reynsla og þekking skiptir máli.
Á sama tíma teljum við mikilvægt að nýtt fólk komi að borðinu með ferskar hugmyndir, ný sjónarmið og nýja sýn. Samspil reynslu og nýrrar hugsunar gerir okkur betur í stakk búin til að takast á við komandi verkefni.
Eitt stærsta verkefni kjörinna fulltrúa er að forgangsraða verkefnum á öllum sviðum sveitarfélagsins og fara vel með fjármagn. Verkefnin eru ólík en við þurfum að sinna þeim öllum af ábyrgð og kostgæfni. Þar má nefna félagsþjónustu, fræðslumál, íþrótta- og æskulýðsmál, skipulags- og byggingarmál, umhverfismál, fjármál og stjórnsýslu ásamt rekstri veitna og hafna. Sum verkefni eru lögbundin en önnur ekki og því þarf bæði yfirsýn og metnað til að gera gott samfélag enn betra.
Við viljum auka sýnileika sveitarstjórnar og bæta upplýsingaflæði til íbúa. Markmið okkar er að halda opna fundi á tveggja mánaða fresti þar sem farið verður yfir helstu mál sveitarfélagsins þar sem íbúum gefst tækifæri til að ræða þau beint við kjörna fulltrúa. Þá viljum við skoða reglulega útgáfu upplýsingablaðs með fréttum og upplýsingum frá sveitarfélaginu og kjörnum fulltrúum.
Við trúum því að öflug samskipti, ábyrg stjórnun og skýr framtíðarsýn séu lykillinn að áframhaldandi uppbyggingu sveitarfélagsins. Með áframhaldandi stuðningi getum við haldið verkinu áfram. Við erum meðvituð um ábyrgðina sem fylgir, teljum okkur vita hvar við getum gert betur og ætlum að gera okkar allra besta.
Þessi öflugi hópur sem skipar K-listann fyrir komandi kjörtímabil óskar eftir stuðningi þínum í dag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir samfélagið okkar. Við vonumst eftir að þið setjið X við
K- listann í dag.
Helgi Einarsson.