Árskort á Dalvíkurvöll komin í sölu
Dalvík/Reynir hefur hafið sölu á árskortum fyrir meistaraflokk karla og kvenna.
Í ár eru tvö kort sem standa til boða. Hvítt kort sem eru hefðbundin árskort sem gilda á alla heimaleiki félagsins og kostar 20.000 kr.
Svo eru gullkortin á 100.000 kr, en inn í þeim pakka er frítt fyrir tvo á alla deildarleiki, tveir borgarar og drykkur fyrir leik og boðsmiði á lokahóf félagsins. Hægt er að dreifa greiðslum á gullkortinu.
Hægt er að kaupa kortin á stubb.is
