Átt þú rétt á styrk til jöfnunar flutningskostnaðar?
Byggðastofnun auglýsir:
Þeir sem geta sótt um styrk eru einstaklingar og lögaðilar sem staðsettir eru fjarri innanlandsmarkað eða útflutningahöfn og:
- stunda framleiðslu á vörum sem falla undir c-bálk ÍSAT2008
- stunda framleiðslu á vörum sem falla undir flokk 01.1 og/eða flokk 01.2 í a-bálk ÍSAT2008 enda sé varan fullunnin í söluhæfar umbúðir.
Umsóknarfrestur er til og með 31. mars.
Um styrkina gilda lög um svæðisbundna flutningsjöfnun nr. 160/2011.
Nánari upplýsingar um styrkina má finna á heimasíðu Byggðastofnunar (www.byggdastofnun.is)