Fjallabyggð

Berjadagar í Ólafsfirði

Berjadagar tónlistarhátíð í Ólafsfirði verður haldin dagana 1.-4. ágúst. Hátíðin sem verður haldin í tuttugasta og fyrsta sinn í Ólafsfirði, fer af stað fimmtudaginn 1. ágúst með kraftmiklu upphafskvöldi. Kvöldið hefst með íslenskum þjóðlögum og hljóðfæraslætti í flutningi Spilmanna Ríkínís í kirkjunni. Eftir tónleikana rölta gestir saman yfir í hljómleikasal Menningarhússins þar sem haldið verður áfram inn í norðlenska nótt með bæjarlistamönnunum Guito og Rodrigo sem leiða brasilíska hljómsveit Berjadaga.

Ekki má missa af hátíðarkvöldi í kirkjunni með einvalaliði íslenskra einsöngvara og einleikara föstudaginn 2. ágúst en síðar sama kvöld stígur tvíeykið Hundur í óskilum fram á sviðið. Morgunstund með söng fyrir börn og fullorðna prýðir dagskrá laugardagsins 3. ágúst. Sviðsuppfærsla á fyrsta þætti La Traviata markar tímamót  og verður flutt í Menningarhúsinu ásamt galsafengnum ítölskum og rússneskum aríum. Sem fyrr verður gengið inn í dal með heimamanni til að leggjast í móinn og tína fjallagrös, göngutúr sem fjölskyldan getur notið saman í kyrrð og fegurð fjarðarins. „Hátíðarbrunch“ með djassívafi, Guito og Femke Smit á Kaffi Klöru slær síðan botninn í helgina.

Fjöldi listamanna kemur fram á Berjadögum 2019. Þeir eru meðal annars Sigrún Pálmadóttir, Elmar Gilbertsson, Femke Smit, Páll Palomares, Örn Magnússon, Marta Guðrún Halldórsdóttir, Halldór Bjarki Arnarson, Ásta Sigríður Arnardóttir, David Bollen, Jana Salóme Ingibjargardóttir, Ágúst Ólafsson, Hugi Jónsson, Tómas Haarde, Jón Þorsteinsson, Hanna Þóra Guðbrandsdóttir, Elfa Dröfn Stefánsdóttir, Nathalía Druzin Halldórsdóttir, Edda Björk Jónsdóttir, Björg Jóhannesdóttir, Halla Ólöf Jónsdóttir, Þóra Björnsdóttir, Ingrid Nugteren, Lilja Gísladóttir, Guðrún Ösp Sævarsdóttir, Ólafur Rúnarsson, Örvar Már Kristinsson, Ólöf Sigursveinsdóttir, Diljá Sigursveinsdóttir, Sigursveinn Magnússon, Sigrún Valgerður Gestsdóttir, tvíeykið Hundur í óskilum skipað Hjörleifi Hjartarsyni og Eiríki Stephensen, brasilíska bandið með Rodrigo Lopes, Rodrigo Guito Thomas og Stefáni Daða Ingólfssyni, og að venju leiðir María Bjarney Leifsdóttir gönguna inn Árdalinn.

 

Hátíðin býður upp á dagskrá fyrir alla aldurshópa og er aðgangur ókeypis fyrir 18 ára og yngri. Nánari upplýsingar: www.artfest-berjadagar.is

 

Miðasala á midi.is og við innganginn.

Stakir aðgöngumiðar: 1.500 kr / 3.000 kr / 3.500 kr / 4.000 kr

Hátíðarpassi: 8.500 kr.

Dagskráin 1.-4. Ágúst

 

Fimmtudagur 1. ágúst kl. 20 – Ólafsfjarðarkirkja

Fyrri upphafstónleikar – Fagurt syngur svanurinn

Spilmenn Ríkínis: Örn Magnússon, Marta Guðrún Halldórsdóttir, Halldór Bjarki Arnarson og Ásta Sigríður Arnardóttir.

 

Fimmtudagur 1. ágúst kl. 22 – Menningarhúsið Tjarnarborg

Seinni upphafstónleikar – Brasilískt!

Listamenn: Femke Smit, Rodrigo Lopes, Rodrigo Guito Thomas og Stefán Daði Ingólfsson.

 

Föstudagur 2. ágúst kl 20 – Ólafsfjarðarkirkja

Hátíðarkvöld í kirkjunni

Listamenn: Elmar Gilbertsson söngur, Hanna Þóra Guðbrandsdóttir söngur, Hugi Jónsson söngur, Elfa Dröfn Stefánsdóttir söngur, Jón Þorsteinsson söngur, Ólöf Sigursveinsdóttir selló, Páll Palomares fiðla og David Bollen píanó.

 

Föstudagur 2. ágúst kl. 22:30 – Safnaðarheimili Ólafsfjarðarkirkju

Miðnæturtónleikar – Hundur í óskilum

Listamenn: Hjörleifur Hjartarson og Eiríkur Stephensen.

                                              

Laugardagur 3. ágúst kl. 10:30-11:30 – Ólafsfjarðarkirkja

Krákan situr á steini: Komdu að syngja og dansa við norræn þjóðlög!

Tónlistarsamverustund með Diljá Sigursveinsdóttur fyrir börn, unglinga, foreldra, afar og ömmur.

 

Laugardagur 3. ágúst kl. 12:00

Göngutúr frá Kleifum inn í Árdal

María Bjarney Leifsdóttir leiðir gesti inn í leyndardóma hinnar töfrandi flóru Ólafsfjarðar.

 

Laugardagur 3. ágúst kl. 15:30 – Dvalarheimilið Hornbrekka

Söngstund í Hornbrekku

Venju samkvæmt flytja listamenn úrval af dagskrá Berjadaga. Sópransöngkonan Hanna Þóra Guðbrandsdóttir heimsækir Hornbrekku að þessu sinni ásamt Sigursveini Magnússyni píanóleikara.

                              

Laugardagur 3. ágúst kl. 20:00 – Menningarhúsið Tjarnarborg

Ítalskt og rússneskt óperukvöld – Íslenskt einsöngvaralið um Verslunarmannahelgina!

Listamenn: Ágúst Ólafsson, Björg Jóhannesdóttir, David Bollen, Diljá Sigursveinsdóttir, Edda Björk Jónsdóttir, Elfa Dröfn Stefánsdóttir, Elmar Gilbertsson, Guðrún Ösp Sævarsdóttir, Halla Ólöf Jónsdóttir, Hanna Þóra Guðbrandsdóttir, Hugi Jónsson, Ingrid Nugteren, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, Jón Þorsteinsson, Lilja Gísladóttir, Nathalia Druzin Halldórsdóttir, Ólafur Rúnarsson, Sigrún Pálmadóttir, Tómas Haarde, Þóra Björnsdóttir og Örvar Már Kristinsson.

 

Sunnudagur 4. ágúst kl. 11:00  – Ólafsfjarðarkirkja

Berjamessa

Fjölskyldan úr Garðshorni flytur tónlistaratriði: Sigursveinn Magnússon, Sigrún Valgerður Gestsdóttir, Diljá Sigursveinsdóttir og Ólöf Sigursveinsdóttir.

 

Sunnudagur 4. ágúst kl. 11:00 -14:00 – Kaffi Klara

Hátíðarbröns með Femke Smit og Guito

Djass og bröns á Kaffi Klöru og Berjadögum lýkur með glans!