Björguðu fjölskyldu í sjálfheldu í Nesskriðum við Siglufjörð
Í gærkvöldi klukkan 19:15 barst björgunarsveitunum í Eyjafirði útkallsbeiðni vegna fjölkyldu sem var kominn í sjálfheldu í Nesskriðum við Siglufjörð. Hópurinn hafði verið á göngu í allan gærdag og var á bakaleið þegar þau fóru af leið og enduðu í sjálfheldu. Björgunarskipið Sigurvin á Siglufirði ferjaði björgunarsveitarfólk yfir fjörðinn þar sem við tók að tryggja öryggi fólksins og visa því rétta leið niður í fjöru. Þar var svo fólkið flutt á slöngubátum yfir í Sigurvin sem sigldi með það til Siglufjarðar. Aðgerðin tók um þrjár klukkustundir . Alls komu um 60 björgunarsveitarmenn að aðgerðinni.
Björgunarsveitir á Eyjafjarðarsvæðinu hafa nú farið í nokkur útköll undanfarna daga þar sem fólk á göngu hefur villst af leið. Í þessum tilfellum hefur það bjargað miklu að fólk hefur hringt nægjanlega snemma í 112 og óskað aðstoðar, þ.e áður en fólk leggur í aðstæður sem það mögulega ræður ekki við.
Björgunarsveitirnar hvetja alla til að fara varlega, fylgjast með veðurspá og vera með útbúnað við hæfi.
