Norðurland

Bólusetningum með bóluefni Astra Zeneca frestað tímabundið

Eins og fram hefur komið í fréttum í dag þá hefur verið ákveðið að fresta bólusetningum með bóluefninu frá Astra Zeneca tímabundið. Þetta eru ítrustu varúðarráðstafanir sem gerðar eru til að gæta fyllsta öryggis og er gert vegna fregna af hugsanlegum aukaverkunum af efninu í Evrópu. Heilbrigðisstofnun Norðurlands mun bíða eftir frekari fyrirmælum frá Sóttvarnarlækni varðandi næstu skref bólusetninga með efninu frá Astra Zeneca.

HSN er ekki kunnugt um neinar alvarlegar aukaverkanir hjá fólki sem hefur verið bólusett með þessu bóluefni hér á Norðurlandi.

Frá þessu er greint á vef hsn.is.