dalvíkurbyggð

Dalvík og Magni mættust á Kjarnafæðismótinu

Dalvík/Reynir og  Magni frá Grenivík mættust í gær í Kjarnafæðismótinu í A-deild karla í B-riðli. Magni hafði unnið Völsung en D/R var enn án sigurs.

Magni byrjaði leikinn betur og komust fljótlega í 2-0 með mörkum frá Tómasi Arnarssyni. Birgir Ágústsson kom Magna í 3-0.
Dalvík/Reynir kom til baka og skoraði Mikael Jóhannsson og minnkaði muninn í 3-1. D/R fékk svo vítaspyrnu og úr henni skoraði Sindri Sigurðsson og var staðan orðin 3-2 og smá spenna komin aftur í leikinn. Fleiri mörk voru ekki skoruð og vann Magni leikinn 3-2.
Sævar Fylkisson sóknarmaður og Auðun Ingi Valtýsson markmaður, léku með Dalvík/Reyni í þessum leik en þeir eru nýir leikmenn.