Dalvík/Reynir framlengir samninga við lykilleikmenn
Þeir Rúnar Helgi Björnsson, Gunnlaugur Rafn Ingvarsson og Áki Sölvason hafa allir skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Dalvík/Reyni.
Leikmennirnir þrír hafa verið lykilmenn liðsins undanfarin ár og spilað stórt hlutverk innan sem utan vallar.
