Dalvík/Reynir gerði jafntefli við Vestra í 2. deild kvenna
Dalvík/Reynir og Vestri mættust í 2. deild kvenna í úrslitakeppninni í dag.
Vestri byrjaði leikinn vel og komst yfir strax á 3. mínútu og var staðan 0-1 í hálfleik.
Á 58. mínútu skoraði Vestri annað mark og komst í 0-2 þegar rúmur hálftími var eftir.
Aníta Ingvarsdóttir minnkaði muninn fyrir D/R á 63. mínútu og var staðan orðin 1-2. Hennar sjötta mark í deildinni í sumar.
Það var komið fram í uppbótartíma þegar D/R fékk vítaspyrnu. Þjálfari Vestra var rekin útaf, en úr spyrnunni skoraði Lilja Björg Geirsdóttir og var staðan orðin 2-2.
Fleiri mörk voru ekki skoruð og var lokastaðan 2-2.
