dalvíkurbyggð

Dalvík/Reynir heimsótti Gróttu

Dalvík/Reynir og Grótta mættust í 4. umferð Íslandsmótsins í 2. deild karla. Leikið var í Safamýri, gamla Fram svæðinu.

Heimamenn gerðu fyrsta markið á 30. mínútu en það gerði Kristófer Dan Þórðarson. Grótta leiddi 1-0 í hálfleik.

Þjálfari D/R gerði eina breytingu í hálfleik og fór Sævar Þór Fylkisson útaf fyrir Sindra Sigurðarson. Heimamenn gerðu einnig eina breytingu í hálfleik.

Borja Laguna kom inná fyrir Remi Marie hjá D/R á 60. mínútu og þrjár aðrar skiptingar voru gerðar.

Á fimmtu mínútu í uppbótartíma fékk Grótta vítaspyrnu og úr henni skoraði Valdimar Sævarsson. Lokatölur urðu því 2-0 fyrir Gróttu.

Dalvík/Reynir leikur næst heimaleik gegn Kára, 29. maí.