dalvíkurbyggð

Dalvík/Reynir heimsótti Sindra í 2. deild kvenna

Dalvík/Reynir mætti Sindra í 2. deild kvenna í úrslitakeppninni í dag á Hornafirði. Það var Norlandair sem flaug með liðið á Hornafjörð og stytti þar með ferðalagið talsvert.

Sindri skoraði fyrsta mark leiksins á 45. mínútu og var staðan 1-0 í hálfleik.  Heimakonur skoruðu aftur á 49. mínútu og var staðan 2-0. Sindri skoraði aftur á 71. mínútu og var staðan orðin 3-0.

Nokkrum mínútum fyrir leikslok kom svo fjórða markið og voru lokatölur 4-0 fyrir Sindra. Liðið hefur unnið báða leikina í úrslitakeppninni, en Dalvík/Reynir hefur tapað báðum.

Bæði lið voru með þrjá varamenn og komu allir inná í þessum leik.