Dalvík/Reynir mætti Ægi á Dalvíkurvelli
Karlalið Dalvíkur/Reynis mætti toppliði Ægis á Dalvíkurvelli í 2. deild karla í 10. umferð. Ægir hafði aðeins tapað einum leik í deildinni fyrir þennan leik og hafa verið erfiðir við að eiga.
Það var hart barist í fyrri hálfleik og hafði dómarinn nóg að gera og lyfti gula spjaldinu í fjögur skipti. Hvorugu liðinu tókst að skora áður en dómarinn flautaði til hálfleiks.
Gestirnir gerðu eina skiptingu í hálfleik.
Ægir gerði fyrsta markið á 83. mínútu. Í uppbótartíma skoraði svo Ægir sitt annað mark og var það varamaðurinn Aron Daníel Arnalds sem hafði komið inná í upphafi síðari hálfleiks. Lokatölur 0-2 fyrir Ægi.
Dalvík/Reynir eru í 5. sæti eftir 10 umferðir með 16 stig og er deildin jöfn og stutt á milli liða um miðja deildina.
