Dalvík/Reynir mætti Álftanesi í 2. deild kvenna
Dalvík/Reynir og Álftanes mættust á Dalvíkurvelli í dag í 2. deild kvenna. Gestirnir voru í næstneðsta sæti deildarinnar fyrir þennan leik og höfðu tapað síðustu fjórum leikjum. D/R stelpurnar voru með tvo sigra úr síðustu 5 leikjum í deildinni. Gestirnir mættu með mjög ungt lið, flestar stelpurnar fæddar 2009-2010 hjá þeim.
Leikurinn byrjaði fjörlega og komu gestirnir inn marki strax á 3. mínútu. á 10. mínútu var svo dæmd vítaspyrna og fékk leikmaður Álftanes rautt spjald. Lilja Geirsdóttir skoraði úr vítinu og jafnaði leikinn á 11. mínútu, staðan 1-1. Karen Hulda skoraði næsta mark D/R á 20. mínútu og Lilja aftur á 22. mínutu, staðan orðin 3-1 og þannig var staðan í hálfleik.
Karen Hulda skoraði aftur fyrir D/R á 71. mínútu og var staðan orðin 4-1. Næst var komið að Ragnheiði Söru en hún gerði tvö mörk fyrir D/R undir lok leiksins og voru lokatölur því 6-1 í þessum stórsigri liðsins.

