Dalvík/Reynir mætti botnliðinu í 2. deild karla
Dalvík/Reynir og Víðir mættust í 18. umferð Íslandsmótsins í 2. deild karla á Dalvíkurvelli. Víðir vermdi botnsætið í deildinni en hörð barátta er í neðri hluta deildarinnar og gat Víðir með sigri komist úr fallsæti. D/R gat með sigri jafnað Gróttu að stigum í 3. sæti deildarinnar. Víðir var með tvo sigra og eitt jafntefli í síðustu þremur leikjum og hafa verið að sækja úrslit. D/R var með tvö töp og einn sigur í 4. sæti deildarinnar og hafa verið að síga frá efstu liðunum.
Víðir skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik og var staðan 0-2 þegar dómarinn flautaði til hlés. Nokkuð óvænt staða.
Þjálfari D/R gerði tvær skiptingar strax í hálfleik. Víðir hélt áfram að skora síðari hálfleik og var staðan 0-3 á 51. mínútu, 0-4 á 56. mínútu og 0-5 á 61. mínútu. Gestirnir skoruðu því þrjú mörk á 10 mínútna kafla og allt lak hreinlega inn.
Borja Laguna skoraði á 62. mínútu og minnkaði muninn í 1-5 og tæpur hálftími eftir. Víðir gerði þrefalda skiptingu strax eftir mark D/R.
Áki Sölvason skoraði á 72. mínút og var staðan 2-5. Áki skoraði aftur á 78. mínútu og minnkaði muninn í 3-5. V’iðismenn gerðu áfram tvær skiptingar og léku fast síðustu mínútur leiksins og fengu þrír leikmenn liðsins gul spjöld.
Fleiri mörk voru ekki skoruð og vann Víðir óvænt 3-5 sigur og lyftu sér úr fallsæti í deildinni. Dalvík/Reynir er í 4. sæti með 29 stig, fjórum stigum frá 2. sæti deildarinnar.

