Dalvík/Reynir mætti Fjölni á Dalvíkurvelli
Dalvík/Reynir mætti Fjölni á Dalvíkurvelli í 2. umferð í Lengjudeild karla. Fjölnir var með tvo sigra í fyrstu tveimur umferðunum en D/R var með einn sigur og eitt tap.
Heimamenn náðu sér í tvö gul spjöld í fyrri hálfleik. Gestirnir gerðu eina skiptingu skömmu fyrir leikhlé, en markalaust var þegar dómarinn flautaði til hlés.
Fjölnir gerði svo aðra skiptingu í leikhlé, en fyrsta skipting D/R kom á 67. mínútu þegar Nikola Kristinn kom inná fyrir Gunnlaug Rafn sem var á gulu spjaldi.
Abdeen og Nikola fengu svo gult spjald með stuttu millibili þegar tæpar 20 mínútur voru eftir.
Inn vild boltinn ekki þrátt fyrir ágætis færi og góðan leik. Lokatölur á Dalvíkurvelli voru því 0-0 í þessum leik.