Dalvík/Reynir mætti Gróttu á Dalvíkurvelli
Dalvík/Reynir og Grótta mættust í 15. umferð Íslandsmótsins á Dalvíkurvelli. Um var að ræða toppslag í deildinni og gat Grótta nálgast toppliðin og D/R gat tryggt stöðu sína í 2. sætinu en hörð barátta er um efstu fjögur sætin.
Nikola Kristinn kom beint inn í byrjunarliðið hjá D/R og fékk skiptingu á 77. mínútu.
Töluvert var um gul spjöld í leiknum. Það var Grótta sem skoraði fyrsta markið á 40. mínútu og voru yfir 0-1 í hálfleik.
Þjálfari D/R gerði þrefalda skiptingu á 77. mínútu til að freista þess að jafna leikinn.
Á 96. mínútu fékk Tómas Þórðarson leikmaður D/R rautt spjald og Valdimar Sævarsson leikmaður Gróttu fékk sitt annað gula spjald á sama tíma.
Leiknum lauk með sigri Gróttu og eru þeir núna í 3. sæti deildarinnar með jafnmörg stig og Dalvík/Reynir.

