dalvíkurbyggð

Dalvík/Reynir mætti Hvöt í 2. deild karla

Dalvík/Reynir og Kormákur/Hvöt mættust á Dalvíkurvelli á Íslandsmótinu í knattspyrnu karla í 17. umferðinni. Gestirnir voru í 8. sæti deildarinnar og voru með 8 unna leiki og 8 tapaða. D/R gat komist í 2. sæti deildarinnar með sigri.

Það voru gestirnir sem komu inn marki í upphafi fyrri hálfleiks og var það Bocar Djumo sem er nýlega kominn til liðsins. Kormákur/Hvöt spiluðu þéttan varnarleik eftir þetta mark og Dalvík/Reynir var meira með boltann og leituðu færa. Staðan var 0-1 í hálfleik.

Kormákur/Hvöt beitti skyndisóknum og lét D/R sækja á sig. Heimamönnum tókst ekki að jafna leikinn og vann Kormákur/Hvöt dýrmætan sigur sem lyftir þeim upp deildina sem er mjög jöfn.