Dalvík/Reynir mætti KF í Lengjubikarnum
Dalvík/Reynir mætti Knattspyrnufélagi Fjallabyggðar í Boganum á Akureyri í gær. Sannkallaður nágrannaslagur í Lengjubikarnum, en það er alltaf hart barist þegar þessi lið mætast.
KF nældi sér í þrjú gul spjöld í fyrri hálfleik, en rétt undir lok fyrri hálfleiks þá fékk Dalvík/Reynir vítaspyrnu og úr henni skoraði Borja Lopez Laguna og kom Dalvík/Reyni í 1-0. Aðeins mínútu síðar skoraði Dalvík/Reynir aftur, og var það Númi Kárason sem átti það mark, staðan orðin 2-0 og dómarinn flautaði til leikhlés skömmu síðar.
Í upphafi síðari hálfleiks lenti markmaður Dalvík/Reynis í samstuði við annan leikmann og þurfti hann að yfirgefa svæðið í sjúkrabíl. Dalvík/Reynir hafði engan varamarkmann á bekknum í þessum leik, en 7 aðrir útileikmenn voru klárir í slaginn. Sóknarmaðurinn Jóhann Örn var settur í markið og stóð fyrir sínu. Dalvík/Reynir gerði sem sagt tvær skiptingar strax í upphafi síðari hálfleiks, og tvær skiptingar um miðjan hálfleikinn. Á 79. mínútu fékk Birkir Freyr Andrason leikmaður KF sitt annað gula spjald, og þar með rautt og spilaði KF með 10 menn til loka leiks. Undir lok leiksins fékk KF kjörið tækifæri til að minnka muninn þegar þeir fengu vítaspyrnu dæmda, en Jóhann Örn gerði sér lítið fyrir og varði spyrnuna.
Lokatölur voru 2-0 fyrir Dalvík/Reyni í þessum nágrannaslag.