dalvíkurbyggð

Dalvík/Reynir mætti KFA á Dalvíkurvelli

Dalvík/Reynir mætti Knattspyrnufélag Austfjarða í 20. umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu í 2. deild karla. Leikurinn fór fram á Dalvíkurvelli.

D/R þurfti öll þrjú stigin til að minnka forskot Gróttu í 3. sæti deildarinnar. Liðið var með tvo tapleiki og eitt jafntefli í síðustu þremur leikjum deildarinnar.

Gestirnir spiluðu fast í fyrri hálfleik og náðu sér í þrjú gul spjöld með stuttu millibili um miðjan fyrri hálfleik.

Fyrsta mark leiksins kom ekki fyrr en í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar Tómas Þórðarson skoraði fyrir heimamenn. Staðan 1-0 í hálfleik fyrir D/R.

Engin breyting var gerð í hálfleik en þjálfari D/R gerði tvöfalda skiptingu á 72. mínútu og kom Sævar Þór Fylksson í sóknina og Hákon Aðalsteinsson á miðjuna. Útaf fór Tómas Þórðarson og  Nikola Kristinn.

Allt leit út fyrir góðan heimasigur en seint í uppbótartíma skoraði KFA jöfnunarmarkið og var það uppalinn heimamaður þeirra sem var að skora sitt fyrsta mark í deildinni í sumar. Markið skráð á 95. mínútu, og ekki var tími fyrir fleiri mörk.

Lokastaðan var því 1-1 í þessum leik.

Dalvík/Reynir eru núna 7 stigum frá 3. sæti deildarinnar og 8. stigum frá 2. sætinu og því ljóst að liðið getur ekki endað ofar en 4. sæti í ár og er því baráttan á milli þriggja liða að komast upp í Lengjudeildina.