Dalvík/Reynir mætti Völsungi í Mjólkurbikar kvenna
Meistaraflokkur kvenna hjá Dalvík/Reynir mætti stelpunum í Völsungi í Mjókurbikarnum í dag á Dalvíkurvelli. Bæði lið leika í 2. deild kvenna á Íslandsmótinu og var búist við jöfnum leik.
Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik en D/R gerði eina skiptingu í hálfleik.
Fyrsta mark leiksins kom þegar tæplega 10 mínútur voru liðnar af síðari hálfleik en þá skoraði Hildur Arna Ágústsdóttir fyrir Völsung. Staðan 0-1 og nóg eftir.
Heimliðið gerði hvað þær gátu til að jafna leikinn og gerði þjálfarinn þrjár skiptingar eftir markið.
Völsungur hélt út og unnu með minnsta mun og eru komnar áfram í næstu umferð Mjólkurbikarsins.
Völsungur mætir Einherja í næstu umferð, 27. apríl.