Dalvík/Reynir og Völsungur mættust í Mjólkurbikarnum
Dalvík/Reynir og Völsungur mættust í Mjólkurbikarnum í vikunni í meistaraflokki karla. Leikurinn fór fram á Húsavík.
Borja Laguna skoraði strax á 15. mínútu fyrir Dalvík/Reyni. Heimamenn voru fljótir að jafna en á 20. mínútu skoraði Jakobs Róbertsson fyrir Völsung. Jafnt var í hálfleik.
Völsungur skoraði annað mark strax á 47. mínútu og voru komnir í 2-1. Tæpum 20 mínútum síðar skoraði Völsungur aftur og var staðan orðin 3-1. Völsungur skoraði aftur á 74. mínútu og var nú staðan 4-1 og skammt eftir af leiknum.
Völsungur skoraði svo sjálfsmark á 85. mínútu og var því staðan 4-2. Fleiri mörk voru ekki skoruð og fór því Völsungur áfram í 2. umferð bikarsins og mætir Tindastóli á Sauðárkróki 11. apríl.
Dalvík/Reynir mætir Haukum á Dalvíkurvelli í 1. umferð Íslandsmótsins í 2. deild karla.