Dalvík/Reynir vann góðan sigur á Gróttu
Dalvík/Reynir og Grótta mættust á Seltjarnarnesi í dag í Lengjudeildinni í 16. umferð Íslandsmótsins. Bæði liðin voru í fallsæti fyrir þessa umferð og þurftu sannarlega á öllum stigunum að halda.
D/R byrjaði leikinn vel og komst yfir á 20. mínutu með marki frá Frey Jónssyni. Heimamenn jöfnuðu tíu mínútum síðar en Hassan Jalloh skoraði sitt fyrsta mark fyrir D/R og kom þeim í 1-2.
D/R leiddi í hálfleik 1-2 en tveir leikmenn voru komnir á hættusvæði eftir gult spjald.
Dalvík/Reynir byrjaði síðarihálfleik einnig vel og skoruðu strax á 49. mínútu þegar Áki Sölvason skoraði sitt fimmta mark í deildinni í sumar. Staðan 1-3 og nóg eftir.
Á 60. mínútu skoraði Grótta aftur og minnkaði muninn í 2-3. Heimamenn gerðu tvöfalda skiptingu eftir markið og freistuðu þess að jafna leikinn. Dalvík/Reynir lék fast í seinni hálfleik og vörðu sinn hlut og náðu sér í 4 gul spjöld til viðbótar, þar af eitt beint á aðstoðarþjálfarann.
D/R sigldi þessu heim og unnu 2-3 og fengu öll þrjú stigin. Liðið er nú aðeins þremur stigum frá öruggu sæti þegar 6 leiki eru eftir í deildinni.
