dalvíkurbyggð

Dalvík/Reynir vann KFA í 7 marka leik

Dalvík/Reynir mætti KFA á Austurlandi í 9. umferð Íslandsmótsins. Leikurinn fór fram á SÚN vellinum í Neskaupstað í Fjarðabyggð. D/R gat blandað sér í toppbaráttuna sigri en KFA er í neðri hluta deildarinnar eftir erfiða byrjun á Íslandsmótinu.

Það var jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik en heimamenn skoruðu eina mark hálfleikins í uppbótartíma, staðan 1-0. D/R liðið kom ákveðið til leiks í síðari hálfleik, sem átti eftir að vera fjörugur. D/R jafnaði á 56. mínútu þegar Martim Cardoso skoraði. Staðan 1-1.

Sævar Þór Fylkisson kom inná fyrir Þröst Jónasson á 61. mínútu.

KFA komst aftur yfir á á 67. mínútu, staðan 2-1 og nóg eftir.  D/R jafnaði á 78. mínútu þegar Miguel Concalves skoraði og var staðan nú 2-2.

Martim skoraði aftur fyrir D/R á 86. mínútu og kom þeim yfir 2-3. Sævar Þór skoraði skömmu síðar og var staðan orðin 2-4 á 89. mínútu.

KFA minnkaði muninn í 3-4 á 90. mínútu og urðu það lokatölur leiksins. Heldur betur fjörugur seinni hálfleikur og góður útisigur hjá D/R.