dalvíkurbyggð

Dalvík/Reynir vann mikilvægan sigur á Kára

Dalvík/Reynir heimsótti Kára upp á Akranes í dag í 16. umferð Íslandsmótsins í 2. deild karla. Leikurinn var mikilvægur fyrir bæði lið, D/R í toppbaráttunni og gátu styrkt stöðu sína við toppinn en Kári er rétt fyrir ofan fallsvæði deildarinnar og þurftu á öllum stigunum að halda.

Það voru  gestirnir frá Dalvík sem skoruðu strax á 15. mínútu þegar Remi Marie sitt annað deildarmark í sumar fyrir liðið. Staðan 0-1 og þannig var einnig staðan í hálfleik.

Heimamenn jöfnuðu leikinn á 62. mínútu þegar Matthías Gunnarsson skoraði og var staðan því orðin jöfn 1-1.

Dalvík/Reynir skoraði aftur á 71. mínútu og komust yfir 1-2 með marki frá Bjarma Óskarssyni. Eftir markið kom Hákon Aðalsteinsson inná fyrir Sævar Þór Fylkisson.

Bjarmi skoraði aftur á 87. mínútu og tryggði sigurinn, staðan 1-3.  Kom þá önnur skipting og fór Áki Sölvason útaf fyrir Hjört Ævarsson. Í uppbótartíma var svo tími fyrir eina tvöfalda skiptingu.

D/R sigldi þessum sigri heim og eru nú með 29 stig í 2. sæti deildarinnar, tveimur stigum frá Þrótti Vogum og þremur stigum frá Gróttu.

Deildin er jöfn og spennandi í efri hlutanum í ár, en Ægir er en ná toppnum með 35 stig.