dalvíkurbyggð

Dalvík/Reynir vann Víking í Ólafsvík

Dalvík/Reynir mætti Víking í Ólafsvík í 11. umferð Íslandsmótsins í 2. deild karla í knattspyrnu.  Heimamenn voru um miðja deild en Dalvík/Reynir gat sótt á efstu fjögur liðin með sigri.

D/R byrjaði fyrri hálfleik vel og fengu vítaspyrnu á 7. mínútu. Borja Laguna tók spyrnuna og skoraði örugglega. Hans fyrsta mark í deildinni í sumar í 9 leikjum.

D/R leiddi 0-1 í hálfleik og gerði þjálfarinn eina skiptingu þegar Borja Laguna kom útaf fyrir Sindra Sigurðarson, líklega einhver meiðsli.

Leikurinn var í járnum í síðari hálfleik, en D/R kom inn öðru marki á 87. mínútu þegar varamaðurinn Tómas Þórðarson skoraði. Staðan 0-2 og skammt eftir. Í uppbótar tíma skoraði Tómas aftur og gulltryggði Dalvík/Reyni sigurinn.  Markið skráð á 94. mínútu og lokatölur 0-3.

Frábær sigur á þessum erfiða útivelli.