Dalvíkurbyggð leitar eftir tilboðum í uppbyggingu gamla Hauganesvegar
Dalvíkurbyggð hefur auglýst eftir tilboðum í uppbyggingu á gamla Hauganesveginum frá núverandi vegi niður á Hauganes og að þróunarsvæði ofan Sandvíkur. Einnig er gert ráð fyrir uppbyggingu á stíg frá ofanverðum Nesvegi og meðfram veginum. Vegurinn sem byggja á upp er 665 metrar á lengd og stígurinn er áætlaður 505 metrar. Áætluð verklok eru 31. október 2025.
Frestur til að skila inn tilboðum í verkið er til og með fimmtudeginum 28. ágúst.
Áhugasamir geta óskað eftir því að fá send verðkönnunargögn með því að senda póst á helgairis@dalvikurbyggd.is
