Dalvíkurbyggð semur við Steypustöðina á Dalvík fyrir vetrarþjónustu
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar hefur samþykkt að ganga til samninga við Steypustöðina á Dalvík vegna vetrarþjónustu í Dalvíkurbyggð árin 2026-2029. Tilboðsfrestur var til 22. júní síðastliðinn.
Útboðinu var skipt í tvo samningshluta, annars vegar þjónusta á Dalvík (samningshluti 1) og hins vegar þjónusta á Hauganesi og Árskógssandi (samningshluti 2). Tvö tilboð bárust í Samningshluta 1 frá EB ehf. og Steypustöðinni á Dalvík. Fjögur tilboð bárust í Samningshluta 2 frá EB ehf., G. Hjálmarssyni hf., Kötlu ehf., og Steypustöðinni á Dalvík.
Steypustöðin á Dalvík var lægstbjóðandi í báðum samningshlutum.
