Dalvíkurbyggð setur upp öryggisgirðingu á skólalóð
Slysavarnardeildin Dalvík hefur alvarlegar áhyggjur vegna mikillar slysahættu sem skapast hefur við neðanverðan Mímisveg á Dalvík, í kringum leiksvæði á skólalóð Dalvíkurskóla og við Víkurröst. Slysavarnardeildin vill að Dalvíkurbyggð setji fjármagn í grindverk sem myndi ná frá fótboltavellinum að Víkurröst, með tveimur vel staðsettum útgönguleiðum.
Vinnuhópur um skólalóðir Dalvíkurskóla mun taka við þessu verkefni, en Dalvíkurbyggð mun bregðast strax við og setja upp öryggisgirðingar, að minnsta kosti tímabundið.
