Berg menningarhús

Á aðalfundi Sparisjóðs Svarfdæla 2007 var tekin ákvörðun um að reisa menningarhús fyrir íbúa sveitarfélagsins. Í framhaldi af aðalfundinum gerðu Dalvíkurbyggð og Sparisjóðurinn með sér samkomulag um að Dalvíkurbyggð tæki að sér rekstur hússins fyrir hönd íbúa.

Fyrstu skóflustunguna tók Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þáverandi menntamálaráðherra, föstudag fyrir Fiskidag 2007.

Í kjölfarið hófust framkvæmdir við húsið og var verkinu lokið 2009.

Á fundi bæjarstjórnar Dalvíkurbyggðar var ákveðið að mynda sjálfseignarstofnun með opinni þátttöku einstaklinga og /eða fyrirtækja um rekstur hússins og starfsemi.

Stofnfundur í Menningarfélaginu Bergi ses. var haldinn 1. júlí 2009.

Berg

Húsið er glæsileg umgjörð utan um hverskonar menningarstarfsemi, sérstaklega listsýningar, tónleika, ráðstefnur og menningartengda ferðaþjónustu. Starfssemi hússins er þríþætt en þar er Bókasafn Dalvíkurbyggðar, kaffihúsið Basalt cafe – bistro og síðast en ekki síst salurinn með öllum sínum viðburðum.

Salurinn tekur 180 manns í sæti og er hugsaður sem fjölnota salur. Hann er sérstaklega hannaður til þess að bera vel hljóð og hentar því einkar vel fyrir tónlistarflutning. Einnig eru þar listsýningar af ýmsu tagi.

Heimasíða Bergs:

Mynd: dal.is / Magnús Rúnar Magnússon