Dalvíkurskóli hlaut styrk úr sprotasjóði vegna teymiskennslu
Sprotasjóður leik- grunn- og framhaldsskóla hefur úthlutað 59,8 m.kr. til 32 skólaþróunarverkefna fyrir skólaárið 2024–2025. Dalvíkurskóli fékk úthlutað 3,5 milljónum fyrir verkefni vegna teymiskennslu. Þelamerkurskóli hlaut einnig sömu upphæð fyrir sama verkefni. Grenivíkurskóli hlaut 2,7 milljónir fyrir verkefnið Frá kveikju til bókar.
Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik- grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga. Áherslur sjóðsins árið 2024 voru:
- Farsæld barna og ungmenna, með áherslu á umburðarlyndi, fjölbreytileika og inngildingu nemenda
- Teymiskennsla og samstarf
Samtals bárust sjóðnum 67 umsóknir.