Danshátíð í Hrísey 16.-17. ágúst
Danshátíð verður haldin í Hrísey dagana í 16. – 17. ágúst en þar kemur saman dansáhugafólk og slettir úr klaufunum við undirleik þekktra hljómsveita. Hátíðin er nú haldin í fimmta sinn og hefur hún stækkað og þróast mikið.
Mikið er um að sama fólkið komi og njóti þess að dansa í Hrísey því ekki eru margir staðir í dag þar sem hægt er að njóta þess að dansa þessa gömlu góðu dansa, línudans, Sænskt bugg, twist og rokk.
Tilvalið að skella sér í Hrísey þessa helgina og taka þátt.