Hrísey

Danshátíð í Hrísey um helgina

Danshátíðin í Hrísey fer fram í sjötta sinn helgina 15.–16. ágúst. Þar kemur saman dansáhugafólk og skemmtir sér hið besta við undirleik þekktra hljómsveita.

Hátíðin fer fram í gamla félagsheimilinu Sæborg. Hún hefst á föstudagskvöld kl. 20:00 með tónleikum þar sem Rúnar Þór fer yfir 40 ára útgáfuferil sinn. Klukkan 21.30 hefst dansleikur með Stúlla og Tóta frá Siglufirði. Sturlaugur Kristjánsson, Stúlli, gerði garðinn frægan með hljómsveitinni Miðaldamönnum á árum áður og hefur lengi verið virkur í tónlistarlífi Siglufjarðar.

Á laugardag kl. 14 verður dansnámskeið undir stjórn Sólrúnar Bjarkar Valdimarsdóttur. Klukkan 19.30 leika Einar Guðmundsson harmonikkuleikari og hljómsveit hans fyrir dansi, en síðan taka við Rúnar Þór og hljómsveitin TRAP og halda uppi fjörinu til miðnættis.

Forsprakki hátíðarinnar, Ingimar Ragnarsson, segir vinsældir hátíðarinnar hafa aukist ár frá ári. Hugmyndin kviknaði 2019 þegar hann sá sjónvarpsþátt um danshátíð í Svíþjóð þar sem Danshljómsveit Friðjóns kom fram. Fyrsta hátíðin var haldin sama ár, en féll niður 2020 vegna COVID.